Innlent

„Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Mennirnir eru allir sammála um að menningin innan veggja Litla-Hrauns sé afar frábrugðin því hvernig hún var fyrir nokkrum árum. 
Mennirnir eru allir sammála um að menningin innan veggja Litla-Hrauns sé afar frábrugðin því hvernig hún var fyrir nokkrum árum. 

Fjórir menn sem hafa afplánað dóma á Íslandi segja allt aðra menningu ríkja innan veggja fangelsis í dag heldur en fyrir nokkrum árum. Harka hafi aukist til muna meðal yngri kynslóðarinnar og það að sitja inni þyki ekki tiltökumál. Þeir lýsa Litla-Hrauni sem leikskóla. 

Í sjöunda þætti hlaðvarpsins „Frelsið er yndislegt“ koma saman nokkrir menn sem allir hafa setið í fangelsi og reyndar einn sem enn er í afplánun. Það eru þeir Ingólfur Snær, Ásgeir Þór og Andri Ástráðsson auk þáttastjórnandans Guðmundar Inga Þóroddssonar.

Andri Ástráðsson og Ásgeir Þór

Allir eiga mennirnir það sameiginlegt að hafa farið í fangelsi ungir að aldri. Ingólfur og Ásgeir voru báðir á 18 aldursári. 

„Ég var bara logandi hræddur,“ segir Ingólfur þegar hann er spurður hvernig tilfinning það hafi verið að stíga inn í fangelsi í fyrsta sinn.

„Ég vissi ekki almennilega hvað var að taka við.“

Ásgeir sagðist hafa gengið með kökkinn í hálsinum inn í fangelsið á Skólavörðustíg. „Maður var skíthræddur og vissi ekki hverju ætti að búast við. Ég var 18 ára, nýbyrjaður í neyslu en strax kominn í fangelsi. Maður þurfti bara að vera með grímu fyrstu mánuðina.“

Andri var 21 árs þegar hann var handtekinn fyrir aðild að smygli.

„Ég var sóttur í vinnuna af fíknó og fór beint í einangrun á Litla-Hrauni í einn og hálfan mánuð. Einangrunin var nú ekkert djók. Það tók vel á.“

Hann segist hafa verið kvíðinn en spenntur á sama tíma.

„Þetta gekk ágætlega en þetta er eitthvað sem tók á í alla staði. Þetta er áfall.“

„Allur pakkinn“ innan veggja Litla-Hrauns

Í þættinum ræða mennirnir fangavistina frá upphafi til enda. Meðal umræðuefna er þrepaskipting afplánunar, svört menning í fangelsum, meðferðarstarf, nýtt öryggisfangelsi, áhyggjur af ungu fólki í fangelsum, hvaða vímugjafar eru mest notaðir og hvað tekur við eftir afplánun.

Guðmundur segir það staðreynd að nú séu fleiri sem geti farið í svokallað opið úrræði í stað þess að vera í lokuðu fangelsi. Þeir sem veljist þangað séu „í lagi“ og þá verði hinir eftir sem séu veikari.

„En ég get sagt að í fangelsum eins og á Litla-Hrauni þá gerist allt. Nauðganir, líkamsárásir, einelti, kynferðisofbeldi. Það er allur pakkinn. Menn taka þátt í allskonar hlutum sem þeir myndu annars ekki gera undir venjulegum kringumstæðum.“

Fangelsin séu búin að missa fælingarmáttinn

Mennirnir eru allir sammála um að ný kynslóð sé komin inn í fangelsiskerfið.

„Þetta er eins og leikskóli núna,“ segir Ásgeir.

Ásgeir Þór var 17 að verða 18 ára þegar hann fór fyrst í fangelsi.

„Þegar ég kom inn í fangelsi var ekkert verið að stinga menn, ekki séns. Mennirnir sem stjórnuðu hefðu aldrei leyft það, því það hefði fokkað í þeirra rútínu. En núna eru bara yngri gæjar að reyna að gera sig að einhverju nafni. Þeir eru kannski búnir að heyra frá vinum sínum að „við erum bara að selja hérna, geðveikt gaman“ og þeim langar bara að fara í fangelsi til að vera hluti af þessu og geta sagt þegar þeir koma út að þeir hafi verið í fangelsi.“

Ingólfur segist upplifa það þannig að menn séu miklu fyrr og meðvitaðri að fremja alvarlegri ofbeldisglæpi sem verður til þess að yngri kynslóðir koma inn í fangelsið. Hann telur að það hefði meiri fælingarmátt að þurfa að fara til sálfræðings.

„Fangelsi er búið að missa fælingarmáttinn hjá þessum mönnum. Menn setja sig í ákveðin hlutverk til að vera með eitthvað „repp“ í þessum heimi.

Þeir segja bara „fokkit ég fer bara að tjilla með homies“

Andri tekur undir með hinum og segir þróunina grátlega.

„Það er glatað að það að vera á Litla-Hrauni sé nýja trendið. Fangelsismálastofnun þyrfti að taka þetta fastari tökum.“

Hér fyrir neðan má hlusta á þáttinn í heild sinni.


Tengdar fréttir

Fangelsiskerfið ekki rekið með skilvirkni eða árangri

Íslenskt fullnustukerfi er hvorki rekið með skilvirkni né þeim árangri sem lög gera ráð fyrir. Það kemur fram í nýrri stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á Fangelsismálastofnun. Í tilkynningu frá Ríkisendurskoðun kemur fram að ýmsu sé ábótavant í bæði starfsemi og starfsumhverfi Fangelsismálastofnunar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×